Val á Biblíunni
|
|
Gamla testamentið
|
|
Nýja testamentið
|
|
|
|
Biblían 2007
|
|
|
|
1 |
Hvert er unnusti þinn genginn, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvert hefir unnusti þinn farið, að vér megum leita hans með þér? |
2 |
Unnusti minn gekk ofan í garð sinn, að balsambeðunum, til þess að skemmta sér í görðunum og til að tína liljur. |
3 |
Ég heyri unnusta mínum, og unnusti minn heyrir mér, hann sem skemmtir sér meðal liljanna. |
4 |
Fögur ertu, vina mín, eins og Tirsa, yndisleg eins og Jerúsalem, ægileg sem herflokkar. |
5 |
Snú frá mér augum þínum, því að þau hræða mig. Hár þitt er eins og geitahjörð, sem rennur niður Gíleaðfjall. |
6 |
Tennur þínar eru eins og hópur af ám, sem koma af sundi, sem allar eru tvílembdar og engin lamblaus meðal þeirra. |
7 |
Vangi þinn er eins og kinn á granatepli út um skýluraufina. |
8 |
Sextíu eru drottningarnar og áttatíu hjákonurnar og óteljandi ungfrúr. |
9 |
En ein er dúfan mín, ljúfan mín, einkabarn móður sinnar, augasteinn þeirrar er ól hana. Meyjarnar sáu hana og sögðu hana sæla, og drottningar og hjákonur víðfrægðu hana. |
10 |
Hver er sú sem horfir niður eins og morgunroðinn, fögur sem máninn, hrein sem sólin, ægileg sem herflokkar? |
11 |
Ég hafði gengið ofan í hnotgarðinn til þess að skoða gróðurinn í dalnum, til þess að skoða, hvort vínviðurinn væri farinn að bruma, hvort granateplatrén væru farin að blómgast. |
12 |
Áður en ég vissi af, hafði löngun mín leitt mig að vögnum manna höfðingja nokkurs. |
13 |
Snú þér við, snú þér við, Súlamít, snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig! Hvað viljið þér sjá á Súlamít? Er það dansinn í tvíflokknum? |
Icelandic Bible 2007 |
© 2007 Icelandic Bible Society. |